Sæng barnsins ætti ekki að vera of þung og ekki of stór. Útöndun og einangrunargildi í ekta dúnsæng (æðadún eða gæsadún) er auðvitað betri en úr gerviefnum og því í flestum tilfellum hollari. Nauðsynlegt er að viðra sængina reglulega og helst láta hreinsa hana eftir þörfum.

Við val á sængurfötum ættum við m.a. að taka tillit til þess að barnið verði ekki fyrir óþarfa áreiti. Myndamunstur sem í raun eru auglýsingar fyrir kvikmyndir og vörur (Barbie, Spiderman o.fl.) eru kannski ekki æskilegust þar sem að barnið hvílist og ætti að fá að vera í friði fyrir áreiti.

Með vefnaðarvörur s.s. rúmföt og fatnað þarf að hafa í huga að mörg litarefni og framleiðsluferli fela í sér að efnið er meðhöndlað með sýruböðum, og eiturefnum af ýmsum gerðum, sumum jafnvel skaðlegum heilsunni. Eins er framleiðslan sjálf oft uppspretta alvarlegra umhverfisáhrifa og heilsutaps fólks. Sum efni eru þó umverfisvænni en önnur.

Bómull er eitt skaðlegasta hráefnið vegna mikillar eiturefnanotkunar við ræktun þess. Fyrir hvert kg. af bómull sem er ræktað þarf um eitt kg. af eiturefnum. Sé hins vegar valin lífrænt ræktuð bómull þá er eiturefnanotkun næstum bönnuð og notkun skaðlegra efna við meðhöndlun efnanna haldið í algeru lágmarki.

Umhverfismerkingar á borð við Svaninn tryggir að framleiðslan hafi verið umhverfisvæn, lífrænar vottanir (fjöldi merkja í umferð um allan heim) gefa til kynna að varan hafi verið framleidd með lífrænum aðferðum. Sanngirnisvottun (Fair Trade) er staðfesting á því að varan er unnin á siðferðislega sanngjarnan hátt, án skaðlegra áhrifa fyrir starfsmenn og að þeir fái sanngjörn laun fyrir vinnuna.

Birt:
12. febrúar 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sængurföt“, Náttúran.is: 12. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2007/06/25/sngurft/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 25. júní 2007
breytt: 13. júní 2014

Skilaboð: