Orkunotkun tækja s.s. hljómflutningstækja er skilgreind með orkumerkjum s.s. Energy Star og Evrópska orkumerkinu.
Um 10% raforkunotkunar heimilistækja fer oft á tíðum í svokallaða biðstöðu eða „Stand by" notkun. Hafa ber í huga að í biðstöðu eyða rafmagnstæki orku án notkunar. Tæki í biðstöðu skila engu til notenda nema hærri rafmagnsreikningi. Biðstaða tækja er oft kölluð rafmagnsleki enda seytlar hægt og bítandi út raforka engum til gagns. Auðveldasta leiðin til að minnka biðstöðunotkun er að slökkva alveg á tækjum og helst að taka úr sambandi.

Birt:
2. desember 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Hljómflutningstæki“, Náttúran.is: 2. desember 2011 URL: http://nature.is/d/2007/06/25/hljmflutningstki/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 25. júní 2007
breytt: 13. júní 2014

Skilaboð: