Voffi er ein „persónan“ í merki Náttúrunnar og tákn fyrir leitarvélina hér á vefnum en hann þefar uppi og vísar þér á það sem þú ert að leita að hvort sem það er hugtak, fyrirtæki eða ákveðin vara. Prufaðu að slá inn það sem þú hefur áhuga á að finna hér í leitarreitinn ofarlega til hægri á síðunni.

Vöruleit flipinn á Náttúrumarkaðinum hér til hægri gerir þér ennfremur kleift að leita að vöru eftir þeim kröfum sem þú gerir til hennar s.s.; framleiðanda, merkingu og vottun.

Þú getur einnig farið beint á Grænar síður og leitað aðalflokkum og síðan í undirflokkum eða slegið inn atriðisorð eða heiti aðilans sem þú leitar að í leitarreitinn.

Græna Íslandskortið er enn önnur leið til að leita hér á vefnum. Þú smellir á Grænt Íslandskort og sérð þá þrjá meginflokka sem táknaðir eru með þremur litum þ.e.: blár fyrir „sjálfbæran lífsstíl“, grænn fyrir „náttúru“ og appelsínugulur fyrir „menningu og samfélag“.

Ef þú finnur ekki eitthvað sem þú leitar að þá skrifaðu Voffa á nature@nature.is og hann hjálpar þér við leitina.

Grafík: Voffi, ©Náttúran.is.

Birt:
28. nóvember 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Að leita á Náttúran.is “, Náttúran.is: 28. nóvember 2011 URL: http://nature.is/d/2009/07/04/ao-leita-natturan/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 4. júlí 2009
breytt: 28. nóvember 2011

Skilaboð: