Hilmar Malmquist, líffræðingur og forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs, flytur erindi um Blávatn, nýjasta vatn landsins, á Hrafnaþingi í dag miðvikudaginn 2. nóvember.

Í erindinu verður fjallað um nýjasta stöðuvatns landsins sem myndast hefur í gíg Oksins í Borgarfirði á allra síðustu árum. Tilurð vatnsins er rakin til loftslagshlýnunar og jökulbráðnunar. Vatnið er um 10 ha að stærð og mesta dýpi um 4,5 m. Fyrst varð vart við vatnið sumarið 2007 og er ekki vitað til þess að eiginlegt stöðuvatn hafi verið þar áður. Í kjölfar fundarins hefur Náttúrufræðistofa Kópavogs vaktað vatnið og í ágúst 2010 var farinn þangað all ítarlegur rannsóknarleiðangur. Í erindinu verður greint frá ýmsu sem varðar vatnafars- og vatnaformfræðilega þætti og kynntar fyrstu niðurstöður sem lúta að líffræði þessa unga og lítt mótaða vistkerfis.

Erindið verður flutt í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, 3. hæð kl. 15:15-16:00.

Sjá hvar Nátturufræðistofnun er hér á Grænum síðum.

Birt:
2. nóvember 2011
Tilvitnun:
Náttúrufræðistofnun Íslands „Blávatn á Oki - Hrafnaþing“, Náttúran.is: 2. nóvember 2011 URL: http://nature.is/d/2011/11/02/blavatn-oki-hrafnathing/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: