Te og flest krydd eru þurrkaðar afurðir ýmissa jurta. Líkt og með lifandi plöntur gildir að ræktun sé sem hreinust og náttúrulegust til að tryggja gæði. Einnig ráðast gæðin af því hvernig þurrkun, geymsla og pökkun á sér stað.

Lífræn vottun eða umhverfisvottun snýst um allt ferlið frá framleiðslu til pökkunar og tryggir að hvergi hafa verið notuð skaðleg efni og að unnið sé með gæði og umhverfisvernd í huga, samkvæmt ströngum reglum.

Stundum er aukefnum s.s. rotvarnarefnum eða jafnvel MSG bætt í kryddblöndur til að auka bragð eða endingu. Því er mikilvægt að lesa vel um innihaldið. Sjá E-efna tólið á e.natturan.is til að fræðast um einstaka E-efni og hættustig þeirra.

Birt:
17. október 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Kryddhilla“, Náttúran.is: 17. október 2011 URL: http://nature.is/d/2007/06/21/kryddhilla/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. júní 2007
breytt: 17. maí 2014

Skilaboð: