Húsið og umhverfið - ráðgefandi uppsláttarrit
Húsið og umhverfið er einn af þeim þáttum hér á vefnum sem hefur að geyma góð ráð til að lifa umhverfisvænna lífi.
Í Húsinu og umhverfi þess eru 12 rými. Ef smellt er á utanhússrýmin, herbergin og síðan einstaka hluti þegar komið er inn í rýmin, birtast upplýsingar um hvernig umhverfi og heilsa geta tengst þeim. Húsið er þannig í raun gagnabanki um umhverfisvænan lífsstíl og lykill að umhverfislausnum fyrir heimilið. Hafa ber einnig í huga að umhverfisvænn lífsstíll sparar peninga og er hagkvæmur þegar til lengri tíma er litið bæði fyrir menn og náttúru.
Birt:
2. ágúst 2011
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Húsið og umhverfið - ráðgefandi uppsláttarrit“, Náttúran.is: 2. ágúst 2011 URL: http://nature.is/d/2007/10/09/hsi-og-umhverfi-rgefandi-uppslttarrit/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. október 2007
breytt: 2. ágúst 2011