Green Drinks eða „Grænir drykkir“ er alþjóðleg óformlegt samfélag sem starfar óhefðbundið í 466 borgum um allan heim. Grænir drykkir hafa það að markmiði að fólk með áhuga á umhverfismálum hittist og efli með sér tengsl til að vinna að grænum og góðum málefnum. Jafnt áhugafólks sem fagaðilar eru velkomnir í hópinn. Margir hafa myndað tengls og jafnvel fundið sér starfsvettvang innan umhverfistengdra fyrirtækja, samtaka með þátttöku á samdrykkju með grændrykkjufélögum um allan heim.

Fyrsti hittingur Grænna drykkja hér á landi var haldin í lokaveislu Grænna daga GAIA í Norræna húsinu þ. 6. mars sl. en nú er aftur boðið til samkundu á grænum drykkjarnótum þ. 1. apríl kl 17:30 í Norræna húsinu. Hægt er að hafa samband við Charlotte charlotte.o.ferrier@gmail.com eða í síma 8570945 til að fá nánari upplýsingar.

Fjöldi skemmtilegra merkja og myndefnis hefur verið unnið til að vekja athygli á Grænum drykkjum um allan heim. Mynd: Green Drinks Chattanooga.

Sjá alþjóðlegan vef Green Drinks.

Birt:
31. mars 2009
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Boðað til grænnar samdrykkju í annað sinn“, Náttúran.is: 31. mars 2009 URL: http://nature.is/d/2009/03/31/booao-til-graennar-samdrykkju-i-annao-sinn/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: