Góður eða grimmur Árni?
Árni vill greinilega hafa vaðið fyrir neðan sig og vill bendla sig tímanlega við umhverfisvæna skipulagshætti, sennilega til að tryggja sér sitt álver.
Látið er líta út fyrir að hér sé Árni að sýna mikla sanngirni við nágranna sína og sýni umhverfinu mikla virðingu. Talað er um að Árni gefi með þessu frá sér tugi milljóna í fasteignagjöld. Tugir milljóna eru ekki miklir peningar og vinnast fljótt í mögulega minna skertu fasteignamati á lóðum í nágrenni eða á mörkum þynningarsvæðis álversins. Árni kann að reikna og sér nú að fólk vill ekki endilega álver í nágrenni sínu. Það má því frekar orða það þannig að hann sé nú að forða sínu fólki og troða þessu álveri sínu, ímyndaða, upp á nágranna sinn.
-
Greinarhöfundur fær ekki séð að umrædd frétt sé nema í besta falli skrifuð að fávisku og skorti á heildaryfirsýn yfir það hvað bygging álvers af þessari stærðargráðu (þó aðeins eigi það að verða 150 þús. tonna) þýðir í raun og veru í umhverfisáhrifum. Þá skiptir engu máli hvar ímyndaðar sveitarfélagslínur liggja og það að Árni vilji hafa hluta versins inni í Garði gefur ekki nokkuð tilefni til að státa af umhverfisverndarhugsjónum.
-
Aðrir sem ekki eru eins spenntir fyrir álveri á Reykjanesi og Árni Sigfússon og hafa aðra sýn fyrir svæðið, halda opinn fund um álver í Helguvík, í Svarta pakkhúsinu, Hafnargötu 2 í Reykjanesbæ.
Sjá frétt á vef Landverndar.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Góður eða grimmur Árni?“, Náttúran.is: 11. janúar 2007 URL: http://nature.is/d/2007/03/16/godurgrimmur_arni/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 16. mars 2007
breytt: 30. apríl 2007