Evrópska orkumerkið
Evrópska orkumerkið byggir á tilskipun frá ESB og eru framleiðendur og seljendur frysti- og kæliskápa, uppþvotta- og þvottavéla ásamt þurrkara og eldhúsofna skyldugir að merkja vörur sínar með þessu merki. Vörurnar geta fengi mismunandi bókstafi frá A til G sem lýsir orkunotkun þeirra. A er mest orkusparandi meðan G er orkufrekast. Fyrir frysti- og kæliskápa er búið að bæta við tveimur flokkum í viðbót A+ og A++ þar sem A++ er mest orkusparandi.
Birt:
3. janúar 2009
Tilvitnun:
Finnur Sveinsson „Evrópska orkumerkið“, Náttúran.is: 3. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2007/04/25/evrpska-orkumerki/ [Skoðað:3. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 25. apríl 2007
breytt: 13. júní 2014