Plastmerkin eru sjö og gefa til kynna að plastefnið sé endurnýtanlegt eða endurvinnanlegt. Á Íslandi er úrvinnslugjald á heyrúlluplast og umbúðaplasti úr plastfilmu, stífu plasti, frauðplasti og öðru plasti. Gjaldið er lagt á til að greiða fyrir meðhöndlun umbúðanna og endurnýtingu eftir að þær hafa þjónað upphaflegum tilgangi sínum. Sjá nánar á vef Úrvinnslusjóðs.

Til þess að gera endurvinnslu plasts mögulega er nauðsynlegt að merkja tegundirnar sérstaklega því plast getur verið mjög mismunandi að eiginleikum.
Plastiðnaðurinn og aðrir hagsmunaaðilar hafa því komið sér saman um að merkja plastumbúðir og plasthluti með tölustaf í þríhyrningi (1 – 7) og skammstöfun fyrir viðkomandi tegund t.d. Nr. 2, HDPE; High Density PolyEthylene.

  1. PETE (Polyetylentereftalat).
  2. HDPE- PE-HD (Polyetylen, mikill þéttleiki).
  3. PVC (Polyvinylklorid).
  4. PE-LD (Polyetylen, lítlll þéttleiki).
  5. PP (Polypropylen).
  6. PS (Polystyren).
  7. Aðrar plasttegundir

Til að einfalda plastsöfnun býður Gámaþjónustan upp á plastsöfnunargrind og poka sem einfalda plastsöfnun þar sem mikið er safnað saman af mjúku plasti og plastumbúðum. Sjá nánar á vef Gámaþjónustunnar.

Birt:
8. ágúst 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Plastmerkingar og söfnun plasts“, Náttúran.is: 8. ágúst 2011 URL: http://nature.is/d/2008/09/23/plastmerkingar-og-sofnun-plasts/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 23. september 2008
breytt: 8. ágúst 2011

Skilaboð: