Austfirskar Krásir - Matur úr héraði er gæðamerki á matvælum úr austfirsku hráefni, afurðir sem byggja á sérstöðu, handverki og hefðum á Austurlandi. Austfirskar Krásir matreiða og framreiða hráefni af hjartans list undir kjörorðunum Upplifun - Vitund - Sérstaða.

Tilgangur samtakanna Austfirskar Krásir - Matur úr héraði er að efla austfirska matarmenningu og vera samstarfsvettvangur þeirra aðila sem stunda rekstur með hráefni svæðisins.

Sjá aðila í Austfirskum krásum hér á Grænum síðum í yfirflokknum Vottanir og viðmið undir flokknum „Austfirskar krásir“ og í yfirflokknum Vörur í flokknum „Heimavinnsla“ en þar er eru allir matarklasar og matarverkefni flokkuð undir þeim vörum sem þeir bjóða upp á. Á Græna kortinu ásamt öðrum matarklösum og beinsöluaðilum á öllu landinu í nokkrum flokkum. T.d. í flokkunum „Heimavinnsla og Nýsköpun í heimabyggð“.

Birt:
6. október 2012
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Austfirskar Krásir - Matur úr héraði“, Náttúran.is: 6. október 2012 URL: http://nature.is/d/2009/11/02/austfirskar-krasir-matur-ur-heraoi/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 2. nóvember 2009
breytt: 6. október 2012

Skilaboð: