Heyannir er tíundi mánuður ársins og fjórði sumarmánuður samkvæmt gamla norræna tímatalinu. Heyannir hefjast alltaf á sunnudegi eftir aukanætur á miðju sumri.

Hin gömlu íslensku mánaðaheiti eru þessi:

  1. þorri hefst föstudag í 13. viku vetrar (19. – 26. janúar)
  2. góa hefst sunnudag í 18. viku vetrar (18. – 25. febrúar)
  3. einmánuður hefst þriðjudag í 22. viku vetrar (20. – 26. mars)
  4. harpa hefst sumardaginn fyrsta, fimmtudag í 1. viku sumars (19. – 25. apríl)
  5. skerpla hefst laugardag í 5. viku sumars (19. – 25. maí)
  6. sólmánuður hefst mánudag í 9. viku sumars (18. – 24. júní)
  7. heyannir hefjast á sunnudegi 23. – 30. júlí
  8. tvímánuður hefst þriðjudag í 18. viku sumars (22. – 29. ágúst)
  9. haustmánuður hefst fimmtudag í 23. viku sumars (20. – 26. september)
  10. gormánuður hefst fyrsta vetrardag, laugardag í 1. viku vetrar (21. – 28. október)
  11. ýlir hefst mánudag í 5. viku vetrar (20. – 27. nóvember)
  12. mörsugur hefst miðvikudag í 9. viku vetrar (20. – 27. desember)

Á skífunni hér að ofan sést hvernig gömlu mánaðarnöfnin skarast við gregoríanska tímatalið sem við notumst við í dag.

Grafík: Árstíðaskífa, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.

Birt:
24. júlí 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Í dag er miðsumar“, Náttúran.is: 24. júlí 2011 URL: http://nature.is/d/2010/07/25/i-dag-er-midsumar/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 25. júlí 2010
breytt: 29. júlí 2011

Skilaboð: