Í gærkvöldi og nótt hefur leiðni aukist í Múlakvísl og Veðurstofan og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa fylgst náið með ástandinu á svæðinu. Rétt fyrir miðnætti 20. júli varð vart við óróa í Mýrdalsjökli um leið og leiðni óx hraðar en áður. Samband við vatnshæðamæli við Léreftshöfuð rofnaði í um klukkustund. Í öryggisskyni var ákveðið að loka þjóðveginum um Mýrdalssand meðan ástandið var kannað. Upp úr klukkan 1:00 komst samband aftur á við vatnshæðamæli og var þá talið óhætt að opna veginn aftur að svo stöddu. Áfram verður fylgst með framvindunni.

Birt:
21. júlí 2011
Tilvitnun:
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra „Aukin leiðni í Múlakvísl“, Náttúran.is: 21. júlí 2011 URL: http://nature.is/d/2011/07/21/aukin-leidni-i-mulakvisl/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: