Náttúran.is lítur á það sem samfélagslega skyldu sína að þróa eins fullkomnar „grænar síður“ fyrir Ísland og mögulegt er. Grænu síðurnar™* gefi þannig yfirsýn yfir hin fjölmörgu fyrirtæki og stofnanir sem tengjast náttúru og umhverfi á einn eða annan hátt. Grænu síðurnar tengja viðmið og vottanir við fyrirtæki og vörur og gefa hinum almenna neytanda möguleika á að beina viðskiptum sínum þangað sem honum finnst vera stunduð fyrirmyndar starfsemi. Grænar síður eru liður í að gera eftirfarandi markmið Náttúrunnar að veruleika:

  • Að þróa tæknilegar lausnir að samskiptaveröld sem getur tengt á milli þátta sem annars hafa aðeins huglæga eða óbeina tengingu.
  • Að auka veg íslenskrar náttúru og náttúruafurða í landkynningarlegu tilliti.
  • Að efla atvinnutækifæri henni tengdri um allt land og á öllum sviðum.
  • Að efla þátttöku sem flestra í umhverfismeðvituðum lifnaðarháttum og neyslu sem er síður mengandi eða skaðleg en önnur.

Á Grænum síðum eru upplýsingar um fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla eftirfarandi skilyrði eða stunda eftirtalda starfsemi:

  • Hafa umhverfisvottun (vottun þriðja aðila) fyrir framleiðslu sína eða starfsemi.
  • Eru seljendur umhverfis- og/eða sanngirnisvottaðrar vöru.
  • Hafa opinbera umhverfisstefnu.
  • Hafa fengið umhverfisviðurkenningu.
  • Halda grænt bókhald.
  • Eru eftirlitsaðilar, matsaðilar eða stofnanir.
  • Eru í ferli til að fá vottun.
  • Bjóða þjónustu tengda náttúru og/eða umhverfi.
  • Stunda sjálfbæra starfsemi.
  • Eru framleiðendur/innflytjendur náttúrulegrar framleiðslu og/eða heilsuvöru.

Ekkert gjald er tekið fyrir grunnskráningu á Grænar síður. Hægt er að bæta ítarupplýsingum við skráninguna gegn hóflegu skráningargjaldi til eins árs í senn. Vottanir og aðrar ítarupplýsingar þurfa að vera byggðar á kröfum og skilyrðum tiltekinna vottunaraðila og vera óvéfengjanlegar. Náttúran áskilur sér rétt til að kynna sér réttmæti innsendra upplýsinga og vinnur í þeim tilfellum með viðkomandi vottunar- og eftirlitsaðilum.

2496 aðilar eru skráðir á Grænar síður (staðan þ. 17. apríl 2013). Til þess að komast að því hvort að þitt fyrirtæki eða einhver sem að þér finnst að ætti heima á Grænum siðum sé þar inni nú þegar, þá ferð þú inn á Skráning á Grænar síður eða beint inn á Grænar síður og leitar í viðeigandi flokki eða slærð inn atriðisorð eða heiti þess sem þú vilt finna. Hafir þú tillögur að skráningu aðila á Grænar síður eða vilt breyta eigin skráningu, af einhverjum ástæðum, þá hafðu samband og við leitumst við að fullkomna skráninguna og/eða við sendum þér aðgangsorð og notendanafn að þinni skráningu.

Allar tillögur að nýskráningum eru vel þegnar enda ekki hægt að vinna slíkar landsyfirlit án aðstoðar allra sem hlut eiga að máli. Sendu fyrirspurn eða tillögu á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500.

Skráning á Grænar síður:

Grunnskráning:
Heimilisfang (heimilisfang, póstfang og sími) – gjaldfrjálst 
Vottanir og merki (hafi viðkomandi vottun) – gjaldfrjálst 
Upplýsingar um samskipti (nafn, gsm, fax, netfang og veffang) – gjaldfrjálst 
Aukaskráningar:
Lógó eða merki – gjald 4.750* 
Upplýsingar um starfssemi (lýsing á rekstri og þjónustu) – gjald 4.750*  
Upplýsingar um vörur og þjónustu (lýsing á vörum, vörumerki og þjónustu) – gjald 4.750*

Einfalt er að leiðrétta eða bæta við skráningu. Til að bæta við skráninguna er hakað við þann flokk sem bæta á við og þá opnast viðeigandi hluti skráningarinnar. Verð er síðan reiknað eftir völdum flokkum og birtist neðst á síðunni ásamt leiðum til greiðslu.

*Verð íslenskum krónum, m. vsk. Verð miðast við skráningu í eitt ár. Ef skráð er til tveggj ára í senn er veittur 30% afsl. á seinna ári.

Hægt er að skrá upplýsingar á þremur málum, þ.e.; íslensku ensku og þýsku.

*Vörumerkið „Grænar síður“ er í eigu Náttúran er ehf.

Birt:
17. apríl 2013
Höfundur:
Náttúran er
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Náttúran er „Grænar síður - Ísland í grænu ljósi“, Náttúran.is: 17. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2008/04/07/graenar-siour-island-i-graenu-ljosi/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 7. apríl 2008
breytt: 17. apríl 2013

Skilaboð: