Náttúruleg leikföng eru þau leikföng oft kölluð sem framleidd eru úr náttúrulegum efnum. Oft eru náttúrulegu efnin þó sjálf mettuð aukaefnum og máluð með óvistvænum og jafnvel skaðlegum efnum. Plastmýkingarefni svokölluð þalöt eru sérstaklega skaðleg heilsu barna þar sem þau eru í mörgum tilfellum lík hormónum í líkamanum og geta því haft hormónatruflandi áhrif. Eldhemjandi efni og blýmagn yfir mörkum getur leitt til þess að leikföng eru innkölluð af markaði. Neytendastofa hefur eftirlit með því að leikföng uppfylli kröfur um markaðssetningu leikfanga hér á landi.

Birt:
11. mars 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Varúð! - Leikföng“, Náttúran.is: 11. mars 2011 URL: http://nature.is/d/2008/04/21/varuo-leikfong/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. apríl 2008
breytt: 21. maí 2014

Skilaboð: