Miðvikudaginn 23. maí kl. 17:30 verður síðasti fræðslufundur í fræðslufundaröð Sesseljuhúss og Landverndar. Sesseljuhús er umhverfissetur að Sólheimum í Grímsnesi. Þema dagsins er Orkumöguleikar framtíðar og að vanda verða flutt tvö erindi:
  • Sigurður Ingi Friðleifsson frá Orkusetri fjallar um vistvænt eldsneyti og möguleika þeirra í framtíðinni og
  • Albert Albertsson frá Hitaveitu Suðurnesja fjallar um framtíðarmöguleika í jarðvarmavinnslu.
Mannkynið er mjög orkufrekt og spáð er enn frekari orkuþörf næstu áratugi. Ísland á heimsmet í orkunotkun á hvern íbúa, sem má útskýra með mikilli stóriðju og ekki virðast vera fyrirhugaðar miklar breytingar á því sviði. En hvaða nýjungar eru í farvatninu í orkuöflun og orkunotkun? Á þessum fræðslufundi verður horft sérstaklega til samgangna og jarðhita. Hvað mun knýja bílinn okkar í framtíðinni og hvaða nýju möguleikar liggja í jarðvarma?

Allir velkomnir. Aðgangur er ókeypis.

Myndin er af Sesseljuhúsi. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
20. maí 2007
Uppruni:
Sesseljuhús
Tilvitnun:
Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir „Orkumöguleikar framtíðarinnar - Fræðslufundur“, Náttúran.is: 20. maí 2007 URL: http://nature.is/d/2007/05/20/orkumguleikar-framtarinnar-frslufundur/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 12. janúar 2008

Skilaboð: