Söfnun og meðferð beitilyngs
Beitilyng [Calluna vulgaris]
Lýsing: Kræklóttur smárunni, getur orðið þriggja áratuga gamall. Blöðin eru smá og krossgagnstæð. Blómin lítil í löngum klösum, greinaendar oftast blómlausir. Vex í mólendi og á heiðum. Algengt nema á NV-landi og miðhálendi.
Árstími: Nýblómgað í ágúst.
Tínsla: Tekið með skærum eða klippum. Einungis nývaxnir sprotar.
Meðferð: Þurrkað, gjarnan í knippum.
Ljósmynd: Beitilyng, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.
Birt:
Aug. 13, 2013
Tilvitnun:
Erlingur Filippusson „Söfnun og meðferð beitilyngs“, Náttúran.is: Aug. 13, 2013 URL: http://nature.is/d/2010/05/28/sofnun-og-medferd-villtra-jurta-beitilyng/ [Skoðað:April 1, 2023]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: May 28, 2010
breytt: Jan. 1, 2013