Markmiðið með sanngirnisvottun er að:

• Tryggja að vinnufólk og ræktendur fái sanngjörn laun fyrir vinnu sína
• Vinna gegn misrétti vegna kyns, hörundslitar eða trúar
• Vinna á móti barnaþrælkun
• Hvetja til lífrænnar ræktunar
• Styðja lýðræðisþróun um leið og fólk fær gæðavörur

Alþjóðlegt merki sanngirnisvottunar gengur undir ýmsum nöfnum, eftir þjóðum s.s.: „Max Havelaar“, „Fair Trade“ og „Transfair“. „Hand in hand“ er eigin sanngirnisvottun fyrirtækisins Rapunzel.

Myndin er ekki sanngirnisvottunarmerki heldur útfærsla af yin-yang tákninu, tákni andstæðna sem saman skapa fullkomna heild. Mörg sanngirnisvottunarmerki byggja á yin-yang merkinu, en ekki öll. Grafík: Signý Kolbeinsdóttir. ©Náttúran.is.

Birt:
6. nóvember 2007
Höfundur:
Náttúran er
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Náttúran er „Sanngirnisvottun“, Náttúran.is: 6. nóvember 2007 URL: http://nature.is/d/2007/05/10/sigisvottun/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 10. maí 2007
breytt: 13. nóvember 2011

Skilaboð: