Græn samdrykkju í annað sinn í vetur
Green Drinks eða „Grænir drykkir“ er alþjóðleg óformlegt samfélag sem starfar óhefðbundið í yfir 500 borgum um allan heim. Grænir drykkir hafa það að markmiði að fólk með áhuga á umhverfismálum hittist og efli með sér tengsl til að vinna að grænum og góðum málefnum. Jafnt áhugafólks sem fagaðilar eru velkomnir í hópinn. Margir hafa myndað tengls og jafnvel fundið sér starfsvettvang innan umhverfistengdra fyrirtækja, samtaka með þátttöku á samdrykkju með grændrykkjufélögum um allan heim.
Í þetta sinn verður hist í Kaffi Zimsen, Hafnarstræti 18, miðvikudaginn 17. nóvember kl 19:00. Allir velkomnir og eru þeir sem stóðu að „ókeypis búð“ Borgarahreyfingarinnar og standa að henni í dag sérstaklega beðnir um að mæta og segja frá starfsemi búðarinnar. Áformað er að halda Green Drinks hittinga mánaðarlega en þetta er í annað sinn sem efnt er til grænnar samdrykkju í Reykjavík í vetur. Fyrstu grændrykkjarsamseturnar voru haldin í Reykjavík tvisvar sinnum árið 2009. Sjá frétt um fyrstu og aðra samsetu og grein um heimsókn Margaret Lydecker stofnanda Green Drinks NYC til Íslands.
Sjá facebooksíðu Green Drinks Reykjavík.
greendrinks.reykjavik@gmail.com.
Sjá alþjóðlegan vef Green Drinks.
Fjöldi skemmtilegra merkja og myndefnis hefur verið unnið til að vekja athygli á Grænum drykkjum um allan heim. Mynd: Merki Green Drinks Reykjavík.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Græn samdrykkju í annað sinn í vetur“, Náttúran.is: 15. nóvember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/11/15/graen-samdrykkju-i-annad-sinn-i-vetur/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.