Kúmen [Carum carvi]

Lýsing: Tvíær jurt með greinóttum stöngli og ljósgrænum tví- til þrífjaðurskiptum blöðum. Blöðin minna á baldursbrá, en bleðlarnir eru breiðari og ekki eins þráðlaga. Blómin hvít og mjög smá. Algeng sunnanlands, en aðeins á ræktuðu landi í öðrum landshlutum. Ólíklegt er að söfnun skili tekjum í samræmi við vinnu.

Árstími: Júlí-ágúst

Meðferð: Fræið er tekið þegar það er fullþroskað. Þurrkað í bökkum.

Ljósmynd: Kúmen, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.

Birt:
July 17, 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Erlingur Filippusson „Söfnun og meðferð kúmens“, Náttúran.is: July 17, 2013 URL: http://nature.is/d/2010/05/28/sofnun-og-medferd-kumens/ [Skoðað:April 1, 2023]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: May 28, 2010
breytt: Jan. 1, 2013

Messages: