Jurtaveisla Hildar og Kristbjargar
Hildur og Kristbjörg
Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir kennir um lækningajurtir og Hildur Hákonardóttir um nýtanlegar villtar jurtir í matargerð.
Dagskrá Jurtaveislunnar:
- Laugardaginn 19. júní, frá kl. 10:00-17:00 - Kristbjörg fræðir um jurtir og lækningamátt þeirra. Farið verður í skoðunarferðir um svæðið í kringum Elliðavatn og jurtir greindar. Kristbjörg kennir hvernig best er að tína jurtir, þurrka og geyma og hvernig blanda megi þeim saman. Einnig að búa til te, seyði, tinktúrur og olíur.
- Sunnudaginn 20. júni, frá 10:00-15:00 - Hildur Hákonardóttir fræðir um eðli jurtanna og hvað af villtu flóru Íslands má leggja sér til munns og hvernig best er að matreiða villtar jurtir. Farið í fræðsluleiðangra til jurtasöfnunar. Bragðskynið kannað, jurtirnar matreiddar á ýmsa vegu og síðan borðað saman.
Upplýsingar og skráning er í síma 849 8467.
Birt:
14. júní 2010
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Jurtaveisla Hildar og Kristbjargar“, Náttúran.is: 14. júní 2010 URL: http://nature.is/d/2010/06/14/jurtaveisla-hildar-og-kristbjargar/ [Skoðað:6. janúar 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.