Lífrænt ræktuð íslensk jólatré
Eymundur Magnússon bóndi í Vallanesi í Fljótsdalshéraði hefur á undanförnum árum plantað um milljón trjám á landi sínu í Vallanesi, mikið af þeim stafafura [Pinus contora].
Allt sem Eymundur framleiðir hvort sem eru tré, kartöflur, bygg eða grænkál er ræktað með aðferðum lífrænnar ræktunar enda ber bú hans vottun frá Vottunarstofunni Túni um 100% lífræna ræktun í Vallanesi. Bygg, olíur, grænmeti og tilbúnir réttir eru markaðssettir undir nafninu Móðir jörð og fást m.a. olíur og malað og heilt bygg frá Móður jörð hér á Náttúrumarkaðinum.
Nú er loks komið að fyrstu uppskeru nokkurra hundraða þessarar lífrænt ræktuðu stafafuru og munu þær vera á boðstólum vikuna fyrir jól á stéttinni fyrir utan verslunina Yggdrasil á Skólavörðustíg í Reykjavík, hjá Eymundi í Vallanesi og að Selási 11 á Egilsstöðum.
Sjá heilt bankabygg, byggmjöl, Birkiolíu, Blágresisolíu og Lífolíu hér á Náttúrumarkaðinum.
Myndin er af stafafurru [Pinus contora] í Reykholti. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Lífrænt ræktuð íslensk jólatré“, Náttúran.is: 15. desember 2007 URL: http://nature.is/d/2007/12/15/lifraent-raektuo-islensk-jolatre/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 16. desember 2007