Alls eru 15 aðilar tilnefndir til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2010. Átta eru frá Svíþjóð, þrír frá Noregi, tveir frá Finnlandi og tveir frá Danmörku. Engar tilnefningar bárust í þetta sinn frá Íslandi og sjálfstjórnarsvæðunum Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum.

Umhverfisverðlaunin, sem nema 350.000 dönskum krónum, verða nú veitt í sextánda sinn og er þema þeirra vistvæn fjármálaumsýsla. Ekobanken í Svíþjóð, Cultura Bank í Noregi , Merkur Andelskassen í Danmörku og Sampo Bank í Finnlandi eru meðal þeirra fjármálastofnana sem tilnefndar voru til verðlaunanna.

Ein tilnefning vekur athygli í ljósi þema ársins, en það er tilnefning kvikmyndaleikstjórans John Webster fyrir heimildarmyndina Recipes for Disaster. Myndin fjallar um fjölskyldu Websters sem reyndi í heilt ár að komast af án nokkurs sem framleitt er úr olíu.

Umhverfisverðlaunin 2010 verða veitt norrænu fyrirtæki, stofnun, fjölmiðli eða einstaklingi, sem hefur verið í fararbroddi og haft áhrif, beint eða óbeint, á fjármálamarkaðinni, í fjármögnunarstarfsemi, banka eða ráðgjafa í því augnamiði að ná fram langtíma markmiðum og samþætta hugmyndafræði um sjálfbæra þróun og fjármálaumsýslu.

Af þeim fimmtán sem tilnefndir eru, verða nokkrir valdir til að taka þátt í seinni umferð í vor. Dómnefndin tekur ákvörðun og tilkynnir um verðlaunahafanna á fundi sínum í maí. Verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík í haust.

Norrænu Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru ein af fernum verðlaunum Norðurlandaráðs, önnur verðlaun eru veitt fyrir bókmenntir, kvikmyndir og tónlist. Í fyrra hlaut sænska skólaverkefnið I Ur och Skur verðlaunin, en grunnhugmynd þess skóla byggir á því að börn í dagvistun og skóla eyði eins miklum tíma og mögulegt er í náttúrunni.

Skrifstofa umhverfisverðlaunanna er í danska þinginu. Sendinefnd Dana í Norðurlandaráði sér daglega umsýslu verðlaunanna.

Nánar um Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Birt:
1. mars 2010
Tilvitnun:
Norræna ráðherranefndin „Grænir bankar keppa um umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs “, Náttúran.is: 1. mars 2010 URL: http://nature.is/d/2010/03/01/graenir-bankar-keppa-um-umhverfisverolaun-norourla/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: