Náttúruminjasafni Íslands var tilkynnt fyrirvaralaust með bréfi frá Þjóðminjasafni Íslands dags. 24. janúar s.l. að húsaleigusamningi við Náttúruminjasafnið í Loftskeytastöðinni væri sagt upp frá og með 1. febrúar 2015. Í uppsagnarbréfinu er jafnframt greint frá því að forsætisráðuneytið hafi samþykkt þann 13. janúar s.l. að færa yfirráð hússins og umsjón með því frá Þjóðminjasafninu til Háskóla Íslands.
Þessar ...
Efni frá höfundi
Náttúruminjasafninu sagt upp leigu á Loftskeytastöðinni! 6.2.2015
Náttúruminjasafni Íslands var tilkynnt fyrirvaralaust með bréfi frá Þjóðminjasafni Íslands dags. 24. janúar s.l. að húsaleigusamningi við Náttúruminjasafnið í Loftskeytastöðinni væri sagt upp frá og með 1. febrúar 2015. Í uppsagnarbréfinu er jafnframt greint frá því að forsætisráðuneytið hafi samþykkt þann 13. janúar s.l. að færa yfirráð hússins og umsjón með því frá Þjóðminjasafninu til Háskóla Íslands.
Þessar ákvarðanir koma sér illa fyrir Náttúruminjasafnið og setja starfsemina og það uppbyggingarstarf sem átt hefur sér stað á undanförnu rúmu ...
Í nýrri skýrslu á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs um ástand Þingvallavatns kemur fram að umtalsverðar breytingar hafa átt sér stað í efna- og eðlisþáttum og lífríki vatnsins á undanförnum áratugum. Þingvallavatn hefur hlýnað, styrkur næringarefna aukist, þörungamagn vaxið og rýni minnkað. Breytingarnar eru raktar bæði til hnattrænna og staðbundinna þátta. Þrátt fyrir þessar breytingar er ástand Þingvallavatns enn mjög gott skv ...


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: