Næsta laugadag, þann 13. ágúst, verður lífrænn dagur á Sólheimum. Þennan dag koma góðir gestir til Sólheima, má þar nefna að Íris Hera Norðfjörð frá veitingastaðnum Kryddlegnum hjörtum verður gestakokkur, en hún býður gestum uppá lífrænar súpur, sem eru hennar sérgrein, ásamt lífrænu brauði og salati frá Sólheimum. Hátíðin verður í Grænu könnunni, kaffihúsi Sólheima og verða söluaðilar, framleiðendur og ...
Efni frá höfundi
Lífrænn dagur á Sólheimum 10.8.2011
Næsta laugadag, þann 13. ágúst, verður lífrænn dagur á Sólheimum. Þennan dag koma góðir gestir til Sólheima, má þar nefna að Íris Hera Norðfjörð frá veitingastaðnum Kryddlegnum hjörtum verður gestakokkur, en hún býður gestum uppá lífrænar súpur, sem eru hennar sérgrein, ásamt lífrænu brauði og salati frá Sólheimum. Hátíðin verður í Grænu könnunni, kaffihúsi Sólheima og verða söluaðilar, framleiðendur og aðrir sem tengjast þessum lífsstíl á staðnum, svo sem Samtök lífrænna neytenda og Náttúran.is. Afurðir úr bakaríi, matvinnslu, jurtastofu ...


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: