Næsta laugadag, þann 13. ágúst, verður lífrænn dagur á Sólheimum. Þennan dag koma góðir gestir til Sólheima, má þar nefna að Íris Hera Norðfjörð frá veitingastaðnum Kryddlegnum hjörtum verður gestakokkur, en hún býður gestum uppá lífrænar súpur, sem eru hennar sérgrein, ásamt lífrænu brauði og salati frá Sólheimum. Hátíðin verður í Grænu könnunni, kaffihúsi Sólheima og verða söluaðilar, framleiðendur og aðrir sem tengjast þessum lífsstíl á staðnum, svo sem Samtök lífrænna neytenda og Náttúran.is. Afurðir úr bakaríi, matvinnslu, jurtastofu, skógrækt og gróðurhúsum Sólheima verða jafnframt í boði.

Sama dag kl. 14:00 verða Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds með tónleika í Sólheimakirkju og að þeim loknum, kl. 15:00, verður fræðsluganga frá Sesseljuhúsi um tínslu matsveppa með sveppasérfræðingnum Michele Rebora.

Lífræni dagurinn hefst kl. 12:00 og stendur til kl 18:00.

Á Sólheimum hófst lífræn ræktun fyrst á Norðurlöndunum fyrir rúmum 80 árum síðan með ræktun á grænmeti fyrir heimilisfólk undir forystu Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur stofnanda Sólheima.

Ljósmynd: Rófa, ljosm. Guðrún A. Tryggvadóttir

Birt:
10. ágúst 2011
Höfundur:
Erlendur Pálsson
Tilvitnun:
Erlendur Pálsson „Lífrænn dagur á Sólheimum“, Náttúran.is: 10. ágúst 2011 URL: http://nature.is/d/2011/08/10/lifraenn-dagur-solheimum/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: