Matarbúr Kaju opnaði verslun og kaffihús á Akranesi árið 2014. Matarbúr Kaju selur lífrænt vottuð matvæli, bæði eftir vigt undir merkjum Kaju en auk þess selur Kaja fjölda vörumerkja lífrænt vottaðra matvara. Heildsalan Kaja organic byrjaði á að sérhæfa sig í að þjónusta framleiðendur, leik- og grunnskóla svo og önnur stóreldhús en rekur nú auk þess verslunina og kaffihúsið á Akranesi og nú Matarbúr Kaju að Óðinsgötu 8b. Matarbúr Kaju er fyrsta lífrænt vottaða verslunin á Íslandi.

Opnunartími: Mán. 12:00-18:00, þri. - fös. 13:00-1:008, lau. 12:00-16:00


Kirkjubraut 54
300 Akranes

431 1622
822 1669
kajaorganic@gmail.com

Hluti af:
Kaja organic ehf

Á Græna kortinu:

Græn verslun

Grænar verslanir hafa þá meginstefnu að bjóða upp á afurðir úr héraði, lífrænt- og umhverfisvottaðar vörur. Stærri matvöruverslanir s.s. Bónus, Nettó, Samkaup, Hagkaup og Krónan bjóða auk þess upp á æ stærra vöruúrval í grænum deildum sínum. 

Heilsusamlegur veitingastaður

Áhersla er lögð á hollan og ferskan mat. Hráefni eru gjarnan lífrænt ræktuð, úr héraði. Árstíðauppskera, hráfæði eða grænmetisréttir eru í boði.

Lífrænt vottað kaffihús

Kaffihús með lífræna vottun sem býður upp á lífrænt vottaðar veitingar.

Vottað lífrænt

Undirstaða lífræns landbúnaðar er frjósemi jarðvegs, skiptiræktun, lífrænn áburður og velferð búfjár með nægri útivist, rými og lífrænu fóðri. Afurðir má selja með tilvísun til lífrænna aðferða ef óháð vottunarstofa  staðfestir að framleiðslan uppfylli staðla.

Verslun með lífrænt framboð

Verslun eða vefverslun sem leggur aðaláherslu á að bjóða upp á lífrænt vottaðar vörur. Aðeins ein verslun hefur þó fengið lífræna vottun, þ.e. Matarbúr Kaju á Akranesi og í Reykjavík.

Vottanir og viðurkenningar:

Vottað lífrænt - Tún

Á Íslandi annast Vottunarstofan Tún eftirlit með lífrænni framleiðslu. Í lífrænni ræktun felst að varan hefur verið ræktuð með lífrænum aðferðum, án eiturefna, tilbúins áburðar, hormóna eða erfðabreyttra lífvera. Vottað er í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins um lífræna landbúnaðarframleiðslu og reglur Túns um lífræna snyrtivöruframleiðslu og matreiðslu. Samkvæmt þeim er óheimilt að markaðssetja landbúnaðarvörur sem lífrænar nema þær hafi verið framleiddar í samræmi við ákvæði þessara staðla. Vottunin staðfestir að lífrænum aðferðum hafi verið beitt en metur ekki umhverfisáhrif vörunnar eða umbúða hennar.

Skilaboð: