Matarbúr Kaju opnaði nýja verslun að Óðinsgötu 8b í byrjun september 2016. Matarbúr Kaju selur lífrænt vottuð matvæli, bæði eftir vigt undir merkjum Kaju en auk þess selur Kaja fjölda vörumerkja lífrænt vottaðra matvara. Heildsalan Kaja organic byrjaði á að sérhæfa sig í að þjónusta framleiðendur, leik- og grunnskóla svo og önnur stóreldhús en rekur nú auk þess tvær verslanir og eitt kaffihús. Matarbúr Kaju er fyrsta lífrænt vottaða verslunin á Íslandi.

Opnunartími: Má.-Fö. 11:00-18:00.


Óðinsgata 18b
101 Reykjavík

431 1622
8221668
kajaorganic@gmail.com

Hluti af:
Kaja organic ehf

Á Græna kortinu:

Græn verslun

Grænar verslanir hafa þá meginstefnu að bjóða upp á afurðir úr héraði, lífrænt- og umhverfisvottaðar vörur. Stærri matvöruverslanir s.s. Bónus, Nettó, Samkaup, Hagkaup og Krónan bjóða auk þess upp á æ stærra vöruúrval í grænum deildum sínum. 

Vottað lífrænt

Undirstaða lífræns landbúnaðar er frjósemi jarðvegs, skiptiræktun, lífrænn áburður og velferð búfjár með nægri útivist, rými og lífrænu fóðri. Afurðir má selja með tilvísun til lífrænna aðferða ef óháð vottunarstofa  staðfestir að framleiðslan uppfylli staðla.

Verslun með lífrænt framboð

Verslun eða vefverslun sem leggur aðaláherslu á að bjóða upp á lífrænt vottaðar vörur. Aðeins ein verslun hefur þó fengið lífræna vottun, þ.e. Matarbúr Kaju á Akranesi og í Reykjavík.

Vottanir og viðurkenningar:

Vottað lífrænt - Tún

Á Íslandi annast Vottunarstofan Tún eftirlit með lífrænni framleiðslu. Í lífrænni ræktun felst að varan hefur verið ræktuð með lífrænum aðferðum, án eiturefna, tilbúins áburðar, hormóna eða erfðabreyttra lífvera. Vottað er í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins um lífræna landbúnaðarframleiðslu og reglur Túns um lífræna snyrtivöruframleiðslu og matreiðslu. Samkvæmt þeim er óheimilt að markaðssetja landbúnaðarvörur sem lífrænar nema þær hafi verið framleiddar í samræmi við ákvæði þessara staðla. Vottunin staðfestir að lífrænum aðferðum hafi verið beitt en metur ekki umhverfisáhrif vörunnar eða umbúða hennar.

Skilaboð: