Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað nefnd til að semja frumvarp til laga vegna innleiðingar reglna um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda (ETS).

Á grundvelli EES samningsins mun stór hluti losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi falla undir viðskiptakerfi ESB frá og með 1. janúar 2013. Þar er meðal annars um að ræða alla losun frá stóriðju, og er reiknað með að rúmlega 40% af allri losun á Íslandi verði úthlutað innan viðskiptakerfis ESB frá þeim tíma.

Nefndin á að skila tillögum til umhverfisráðherra fyrir 1. ágúst 2010.

Nefndin er þannig skipuð:

  • Glóey Finnsdóttir, formaður, umhverfisráðuneyti.
  • Guðrún Þorleifsdóttir, lögfræðingur, tilnefnd af iðnaðarráðuneyti.
  • Hrafnhildur Bragadóttir. lögfræðingur, tilnefnd af Umhverfisstofnun.
  • Ómar Þór Eyjólfsson, lögfræðingur, tilnefndur af efnahags- og viðskiptaráðuneyti.
  • Pétur Reimarsson, forstöðumaður, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins.
  • Sigurður Guðmundsson, skipulagsfræðingur, tilnefndur af fjármálaráðuneyti.
  • Valgerður Guðmundsdóttir, lögfræðingur, tilnefnd af samgöngu- og sveitarstjórnamálaráðuneyti.
Birt:
1. mars 2010
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Unnið að lagafrumvarpi um viðskiptakerfi með losunarheimildir“, Náttúran.is: 1. mars 2010 URL: http://nature.is/d/2010/03/01/unnio-ao-lagafrumvarpi-um-vioskiptakerfi-meo-losun/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: