Norskar hjólhþsakonur víðsvegar um Reykjvaík 16.-31. maí. Á Austurvelli þann 16. maí kl. 14:00 og kl. 16:00.

Sýningin „Campingkvinner“ hverfist um hjólhþsi frá 6. og 7. áratugunum. Hjólhþsið er lifandi tjaldferðalag, ferðalangur, færanlegt heimili, minningar hinnar þröngbýlu fjölskyldu – huggulegheit og sumarfrí eða sprengikrafturinn í öllum þessum grunný áttum. Einnig má sjá í verkunum sögur sem tengjast sígaunum, sirkusfólki og öðrum flökkuhópum.

Marit Benthe Norheim fæddist í Noregi árið 1960 og býr nú í Danmörku. Hún nam myndlist við Ríkislistaskólann í Bergen í Noregi og við farandakademíu víðs vegar um Evrópu, þar á meðal í fimm mánuði í Ítalíu, og við Konunglega listaháskólann í London. Í framhaldi af því námi bjó hún og starfaði í London frá 1984 til 1995. Norheim hefur haldið fjölda sýninga, bæði ein og með öðrum, og tekið að sér stór verkefni í Noregi, Danmörku, Englandi, Svíþjóð, á Íslandi og á Grænlandi. Verk hennar eru á ýmsum almenningssöfnum, svo sem Norskra samtímalistasafninu og Norska ríkislistasafninu og á Glyptótekinu í Kaupmannahöfn.  Hún hefur verið kennari við fjölda listaháskóla, meðal þeirra Konunglega listaháskólann og Central Saint Martin listaskólann í London. Mörg stærri verka hennar á opinberum svæðum vinna með samfélagslega þátttöku og í tveimur þeirra ný tir hún sér kvenpersónur úr verkum Henrik Ibsen. Annað þeirra er Konan frá hafinu, kennt við samnefnt leikrit, sem stendur við höfnina í Sæby í Danmörku; hitt er Jómfrúarrottan úr leikritinu Eyjólfi litla, sjö metra höggmynd alsett augum úr postulíni sem  2300 börn tóku þátt í að vinna í Skien, fæðingarborg Ibsens, í tilefni af 100 ára ártíð skáldsins árið 2006.

Sjá meira um Listahátíð í Reykjavík á listahatid.is.

Birt:
11. maí 2009
Tilvitnun:
Listahátíð í Reykjavík „Hjólhýsakonur frá Noregi“, Náttúran.is: 11. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/11/hjolhysakonur-fra-noregi/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: