Kolefnismarkaðurinn 16 þúsund milljarða virði
Orð dagsins 18. ágúst 2009.
Umhverfisfréttaveita Reuters hefur tekið saman einfalt yfirlit yfir kolefnismarkaði heimsins, bæði þá sem þegar hafa tekið til starfa og þá sem eru í bígerð. Á kolefnismörkuðum er verslað með heimildir til að losa koltvísýring og eftir atvikum aðrar gróðurhúsalofttegundir út í andrúmsloftið. Á síðasta ári námu viðskipti á þessum mörkuðum samtals um 125 milljörðum Bandaríkjadala, eða um 16.000 milljörðum íslenskra króna. Kolefnismarkaður Evrópusambandsins er líklega sá þróaðasti, en hann nær til um helmings allrar losunar innan sambandsins. Í Ástralíu liggja fyrir tillögur sem gera ráð fyrir að þarlendur kolefnismarkaður nái til um 75% af allri losun í landinu.
Lesið umfjöllun PlanetArk/Reuter 14. ágúst sl.
Birt:
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Kolefnismarkaðurinn 16 þúsund milljarða virði“, Náttúran.is: 18. ágúst 2009 URL: http://nature.is/d/2009/08/19/kolefnismarkaourinn-16-thusund-milljaroa-viroi/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 19. ágúst 2009