Ráðstefna um framfarir í garðyrkju er afmælisráðstefna Garðyrkjufélags Íslands en hún verður haldin í ráðstefnusal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 þ. 5. mars frá kl. 13:00 - 17:30. Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Dagskrá:

13:00 - 13:10 Setning ráðstefnunnar Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður GÍ
13:10 - 13:20 Ávarp umhverfisráðherra - Svandís Svavarsdóttir
13:20 - 13:50 Reykjavík við aldamót - 1900 og 2000. Samanburður í máli og myndum. Fjallað um ásýnd borgar, húsagerð og garða, - Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur.
13:50 - 14:15 Breytingar á gróðurvali í garðrækt 1885-2010. Sögulegt yfirlit yfir tegundir, sígildar tegundir, tegundir sem hafa komið og farið, tegundir sem hafa alls ekki þrifist, tilraunastarfsemi í ræktun - Hjörtur Þorbjörnsson, grasafræðingur.
14:15 - 14:40 Þróun heimilisgarðsins 1885 - 2010 - Skipulag, nytsemi og fegurð - Ásta Camilla Gylfadóttir, landslagsarkitekt.

14:40 - 15:00 Kaffihlé

15:00 - 15:25 Líffræðilegur fjölbreytileiki í görðum landsmanna. Hið nýja gróðurlendi á Íslandi, áhrif á mannvist, skjól, yndi, uppskera og lþðheilsa - Samson Bjarnar Harðarson, landslagsarkitekt og verkefnisstjóri Yndisgróðurs
15:25 - 15:50 Hvernig var veðrið síðustu 125 ár? Veðurhorfur næstu öldina? Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur.
15:50 - 16:15 Garður í íslensku landslagi - garður framtíðarinnar? Helena Guttormsdóttir, myndlistarmaður.
16:15 - 16:30 Umræður og ráðstefnuslit
16:30 - 17:30 Léttar veitingar

Ráðstefnustjóri: Guðríður Helgadóttir, varaformaður GÍ.

Ljósmynd: túlipani, Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
4. mars 2010
Tilvitnun:
Garðyrkjufélag Íslands „Garðrækt á tímamótum – Með fortíðarreynslu til frjósamrar framtíðar!“, Náttúran.is: 4. mars 2010 URL: http://nature.is/d/2010/03/03/garoraekt-timamotum-meo-fortioarreynslu-til-frjosa/ [Skoðað:27. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 3. mars 2010
breytt: 4. mars 2010

Skilaboð: