Stefnumót um loftslagsmál og Kaupmannahafnarfundinn
Umhverfisráðuneytið, Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun, Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið efna til opins fundar um alþjóðlegar samningaviðræður í aðdraganda Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í Kaupmannahöfn í desember. Fundurinn fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins fimmtudaginn 10. september 2009 kl. 12:00 til 13:30.
Richard B. Howarth, prófessor við Dartmouth College í New Hampshire í Bandaríkjunum og ritstjóri Ecological Economics, og Harald Dovland, deildarstjóri í norska umhverfisráðuneytinu og varaformaður vinnuhóps Kýótó-bókunarinnar um framtíð tölulegra skuldbindinga undir bókuninni, flytja erindi. Richard B. Howarth nefnir erindi sitt Uncertainty, Ethics and the Economics of Climate Change og erindi Harald Dovlands heiti On a steep and bumpy road to Copenhagen. Status in the international climate change negotiations.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Stefnumót um loftslagsmál og Kaupmannahafnarfundinn“, Náttúran.is: 7. september 2009 URL: http://nature.is/d/2009/09/07/stefnumot-um-loftslagsmal-og-kaupmannahafnarfundin/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.