Japan hyggst minnka útblástur um fjórðung miðað við 1990   
Nýkjörinn forsætisráðherra Japans, Yukio Hatoyama, lofar að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda um 25% fyrir 2020 miðað við 1990. Hann tekur við embætti þann 16. september.

Fyrr í sumar höfðu japönsk stjórnvöld kynnt markmið um 8% samdrátt á sama tímabili en þá skal haft í huga að Vísindanefnd Sameinuðu þjóðann telur að iðnríki verði að draga þurfi úr losun um 25 - 40%.

Talið er að Yukio Hatoyama muni kynna ný markmið Japans á sérstökum loftslagsdegi, sem aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-Moon hefur boðað leiðtoga heims til 22. - 23. september.

Sjá frétt RÚV.
Sjá frétt BBC.

Grafík: Japan síðan 1990. Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
7. september 2009
Höfundur:
Árni Finnsson
Tilvitnun:
Árni Finnsson „Japan hyggst minnka útblástur um fjórðung miðað við 1990“, Náttúran.is: 7. september 2009 URL: http://nature.is/d/2009/09/07/japan-hyggst-minnka-utblastur-um-fjoroung-mioao-vi/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: