Í tilefni 20 ára afmæli Svansins undirbýr Umhverfisstofnun markaðsátak til að efla umhverfismerkta vöru og þjónustu á Íslandi. Umhverfisstofnun leitar nú að samstarfsaðilum meðal smásöluverslana, heildsala, innflutningsaðila, leyfishafa og umsækjenda Svansins til að taka þátt í átakinu. Fundurinn verður haldinn á Grand hótel, Háteig B, fimmtudaginn 11. mars, kl. 13:00-16:00

Undirbúning átaksins hefst með hugarflugsfundi og umræðum um hvernig hægt er að ná hámarksárangri með umhverfismerktum vörum og þjónustu. Dröfn Þórisdóttir markaðsráðgjafi, Rósa Hrund Kristjánsdóttir grafískur hönnuður og Kári Sævarsson hugmynda- og textasmiður frá auglýsingastofunni Hvíta Húsinu verða á fundinum og aðstoða við mótun góðra hugmynda.

Svanurinn verður áberandi í fjölmiðlum meðan átakið stendur yfir, en Umhverfisstofnun vill tryggja að umhverfismerktar vörur séu samtímis sýnilegar í verslunum og víðar. Fyrirhugaðir eru margvíslegir viðburðir svo sem grænir dagar í verslunum, leikir, sýningar o.fl. - allt eftir því hver verður niðurstaðan úr samstarfinu.

Skráning til föstudagsins 5. mars á annemaria@umhverfisstofnun.is

Birt:
2. mars 2010
Höfundur:
Umhverfisstofnun
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Hugarflugsfundur um undirbúning markaðsátaks Svansins“, Náttúran.is: 2. mars 2010 URL: http://nature.is/d/2010/03/01/hugarflugsfundur-um-undirbuning-markaosatak-svansi/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 1. mars 2010
breytt: 2. mars 2010

Skilaboð: