Tekið undir með forstjóra Hafrannsóknarstofnunar
Forstjóri Hafrannsóknarstofnunnar, Jóhann Sigurjónsson, lýsir yfir í viðtali við mbl.is vonbrigðum vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra að auka þorskvóta á þessu fiskveiðiári um 30 þúsund tonn.
Forstjóri Hafró segir:
„Ef það gengur eftir sem lesa má úr tilkynningu sjávarútvegsráðuneytisins, að þessari aukningu fylgi viðlíka aukning á næsta ári, þá náttúrulega stefnir þetta uppbyggingarstarfinu í algjöra óvissu. Og það eru vaxandi líkur á að það langtímamarkmið að stækka hrygningarstofninn, sem ég held að allir hafi verið sammála um, hreinlega náist ekki. Það eru mikil vonbrigði. Tíðar breytingar á aflalreglunni í þorski, sem hafa óneitanlega verið á undanförnum árum, færa okkur augljóslega frá markmiðinu um uppbyggingu stofnsins og þeim markmiðum að veita atvinnugreininni meiri stöðugleika.“
Náttúruverndarsamtök Íslands taka undir orð Jóhanns Sigurjónssonar og benda á að með þessari ákvörðun tekur Einar K. Guðfinnsson – líkt og svo margir sjávarútvegsráðherrar á undan honum - lán hjá framtíðinni. Í besta falli er uppbyggingu þorsksstofnsins seinkað um mörg ár.
Framtíðarlán hafa af þessu tagi hafa reynst Íslendingum illa og tal ráðherra um ábyrgar fiskveiðar virðist hjóm eitt.

Birt:
16. janúar 2009
Tilvitnun:
Árni Finnsson „Tekið undir með forstjóra Hafrannsóknarstofnunar “, Náttúran.is: 16. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/01/16/tekio-undir-meo-forstjora-hafrannsoknarstofnunar/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.