Umhverfisstofnun tilkynnti í dag um nýja reglugerð um umhverfismerki fyrir vörur og þjónustu. Það er fyrir norræna umhverfismerkið, Svaninn og umhverfismerki Evrópubandalagsins, Blómið. Með reglugerðinni eru skilyrði fyrir notkun umhverfismerkjanna lögfest t.d. eru þau skilyrði tilgreind sem framleiðendum, innflytjendum og umboðsaðilum umhverfismerktrar vöru ber að fara eftir. Um umhverfismerkin gilda breytilegar viðmiðunarreglur fyrir hvern vöru- og þjónustuflokk. Veiting leyfis til notkunar á umhverfismerkjunum er háð því að þessum viðmiðunarreglum sé fylgt.

Um Svaninn.
Um Blómið.

 

Birt:
15. júlí 2006
Uppruni:
Umhverfisstofnun
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ný reglugerð um umhverfismerkin Svaninn og Evrópublómið“, Náttúran.is: 15. júlí 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/20/reglugerd_umhverfmerk/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 20. mars 2007
breytt: 3. maí 2007

Skilaboð: