Í tilefni af viku endurnýjanlegrar orku í Evrópu heldur Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Enterprise Europe Network fund fimmtudaginn 25. mars nk. kl. 13.00-15.00 á Grand hótel undir yfirskriftinni Framlag Íslands til þróunar í endurnýjanlegri orku.

Dagskrá:

  • Ávarp iðnaðarráðherra - Katrín Júlíusdóttir
  • Nýsköpun í orkutækni - Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
  • Enterprise Europe Network: Tækifæri fyrir íslensk orkufyrirtæki erlendis - Kristín Halldórsdóttir verkefnisstjóri EEN, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
  • CarbFix: Binding koltvísýrings í basalti - Hólmfríður Sigurðardóttir, verkefnastjóri, nýsköpun og þróun hjá Orkuveitu Reykjavíkur
  • Osmósuorka - Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir, verkefnisstjóri í efnaferlum og efnistækni, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
  • 2020 ákvæði Evrópusambandsins - hvernig tengist það íslenskum orkumálum? Guðni A. Jóhannesson, Orkumálastjóri
  • GEORG - GEOthermal Research Group - Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor við Háskóla Íslands

Umræður

Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum. Vinsamlegast skráið ykkur á frettir@nmi.is.

Fundarstjóri: Rósa Signý Gísladóttir, markaðsstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Starfsmenn Enterprise Europe Network á Nýsköpunarmiðstöð, Rannís og Útflutningsráði veita upplýsingar um starfsemi sína að fundi loknum.

Upplýsingar veitir Kristín Halldórsdóttir í síma 522 9232 eða á kristinh@nmi.is.

Birt:
22. mars 2010
Höfundur:
útflutningsráð
Tilvitnun:
útflutningsráð „Orkuráðstefna í tilefni af viku endurnýjanlegrar orku“, Náttúran.is: 22. mars 2010 URL: http://nature.is/d/2010/03/22/orkuraostefna-i-tilefni-af-viku-endurnyjanlegrara-/ [Skoðað:5. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: