HverfisgatStarfsmenn Reykjavíkurborgar vinna nú að uppsetningu tímabundins hjólreiðastígs á Hverfisgötu sem tekinn verður í notkun föstudaginn 20. ágúst. Umhverfis- og samgönguráð samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að hleypa þessu tilraunaverkefni af stað til að efla mannlíf í miðborginni og hvetja til aukinna hjólreiða.

„Markmið tilraunarinnar er að vekja athygli á Hverfisgötu, möguleikum hennar og sérstöðu og gera hjólreiðar að fullgildum samgöngumáta á þessari leið“ segir Hans Heiðar Tryggvason, verkefnisstjóri hjá Umhverfis- og samgöngusviði sem unnið hefur að verkefninu í sumar ásamt Örnu Ösp Guðbrandsdóttur. „Á næsta ári er fyrirhugað að bæta við 10 km af hjólaleiðum í borginni og mun tilraunin á Hverfisgötu veita okkur góð gögn fyrir þá vinnu“ segir Pálmi Freyr Randversson, sérfræðingur hjá Samgönguskrifstofu.

35 gjaldskyld bílastæði á Hverfisgötu verða helguð hjólreiðum í þessari tilraun og hefur verkefnið verið kynnt fyrir íbúum og þjónustuaðilum. Verslunareigendur eru almennt jákvæðir enda sýna erlendar rannsóknir að hjólandi og gangandi vegfarendur nýta sér betur verslun og þjónustu í miðborgum en aðrir vegfarendur. „Ég hef engar áhyggjur af því að það komi færri í búðina þótt það sé ekki laust stæði beint fyrir utan, það er nóg af bílastæðum hér í nágrenninu“ segir Ingvar Geirsson, eigandi plötubúðarinnar Lucky Records á Hverfisgötu. Má þar t.d. benda á  bílastæðahúsin við Vitatorg og Traðarkot.

Tilraunin stendur frá föstudeginum 20. ágúst og út septembermánuð og er kostnaði haldið í lágmarki. Borgarbúar eru eindregið hvattir til að senda ábendingar um upplifun sína af verkefninu á netfangið umhverfissvid@reykjavik.is hjá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkur.

Mynd: Grænn hjólreiðastígur mun prýða Hverfisgötu frá 20. ágúst og út septembermánuð. Samsett mynd

Birt:
17. ágúst 2010
Tilvitnun:
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur „Hjólreiðastígur á Hverfisgötu“, Náttúran.is: 17. ágúst 2010 URL: http://nature.is/d/2010/08/17/hjolreidastigur-hverfisgotu/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 13. september 2010

Skilaboð: