Náttúran birtir nú sjötta sáðalmanak ársins 2012 en Guðfinnur Jakobsson lífrænn bóndi í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Dagur   Tími

1.   júlí   00 – 24 óhagstætt
2.   júlí   00  - 08 blóm, 09 – 20 blað, 21 – 24 ávextir
3.   júlí   00 – 24 ávextir
4.   júlí   00 – 12 ávextir
5.   júlí   00 – 24 rót
6.   júlí   00 – 22 rót
7.   júlí   00 – 24 blóm
8.   júlí   00 – 20 blóm, 21 – 24 blað
9.   júlí   00 – 24 blað
10. júlí   00 – 24 blað
11. júlí   00 – 22 blað
12. júlí   00 – 24 ávextir
13. júlí   00 – 23 ávextir
14. júlí   00 – 16 rót, 16 – 24 óhagstætt
15. júlí   00 – 08 óhagstætt, 08 – 24 rót
16. júlí   00 – 24 rót
17. júlí   00 – 17 rót, 18 – 24 blóm
18. júlí   00 – 24 blóm
19. júlí   00 – 05 blóm, 06 – 24 blað
20. júlí   00 – 20 blað, 21 – 24 ávextir
21. júlí   00 – 24 ávextir
22. júlí   00 – 24 ávextir
23. júlí   00 – 11 ávextir, 11 – 24 óhagstætt
24. júlí   00 – 24 óhagstætt
25. júlí   00 – 11 ávextir, 12 – 18 blað, 19 – 24 rót
26. júlí   00 – 18 rót, 19 – 24 blóm
27. júlí   00 – 24 blóm
28. júlí   00 – 24 blað
29. júlí   00 – 22 óhagstætt, 22 – 24 blað
30. júlí   00 – 05 blað, 06 – 19 ávextir, 19 – 24 óhagstætt
31. júlí   00 – 06 blað, 07 – 12 rót, 13 – 24 ávextir

Dagana 1. og 16. til og með 29. júlí er hagstætt tímabil til útplöntunar/umplöntunar.
Frá og með 2. til og með 15. júlí og dagana 30. til 31. hagstætt til jurtasöfnunar.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkólí
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Sáðalmanak fyrir júlí 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Hönnun: Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
29. júní 2012
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Hildur Hákonardóttir „Sáðalmanak fyrir júlí 2012“, Náttúran.is: 29. júní 2012 URL: http://nature.is/d/2012/06/29/sadalmanak-fyrir-juli-2012/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: