Á dögunum gaf Greenpeace út í 7. sinn skýrsluna ”Guide to Greener Electronics”, en skýrsla af þessu tagi kom fyrst út í ágúst 2006. Í skýrslunni er 18 leiðandi framleiðendum tölvubúnaðar, sjónvarpa og farsíma raðað eftir frammistöðu þeirra í umhverfismálum, með sérstöku tilliti til þess hvaða efni þeir nota í framleiðsluna og hvernig þeir standa að endurnotkun og endurvinnslu. Nokia hefur vermt toppsætið síðustu mánuði, en fellur nú niður í 3. sæti vegna dugleysis við að taka við notuðum tækjum í Indlandi og Rússlandi. Í staðinn sitja nú Samsung og Toshiba á toppnum með einkunnina 7,7 af 10 mögulegum. Nintendo situr hins vegar á botninum með falleinkunn upp á 0,3.
Lesið fréttatilkynningu Greenpeace 18. mars sl.,
skoðið frammistöðu einstakra framleiðenda nánar
og rifjið upp „Orð dagsins“ 10. október 2007
Birt:
2. apríl 2008
Höfundur:
Stefán Gíslason
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Orð dagsins 2. apríl 2008“, Náttúran.is: 2. apríl 2008 URL: http://nature.is/d/2008/04/04/oro-dagsins-2-april-2008/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 4. apríl 2008

Skilaboð: