Eldgos hafið í Eyjafjallajökli
Eldgosið í Eyjafjallajökli er margfalt stærra en eldgosið í Fimmvörðuhálsi, segir Víðir Reynisson, sem stjórnar Samhæfingarstöð Almannavarna. Hann hefur eftir vísindamönnum um borð í TF-Sif að heildarlengd sprungunnar sé sennilega um tveir kílómetrar. Sprungan liggur í norður-suður. Flóðbylgja er á leið niður Markarfljótsaurana gamla brúin er komin á kaf. Til að reyna að bjarga nýju Markarfljótsbrúnni var Suðurlandsvegur rofinn austan við hana. Nánar á á vef Ríkisútvarpsins ruv.is.
Hægt er að fylgjast með gosinu á eldgos.mila.is auk þess sem fréttasendingunum er útvarpað reglulega bæði í útvarpi og sjónvarpi.
Viðvaranir frá Veðurstofu Íslands birtast hér til hægri á síðunni en á vef Veðurstofunnar vedur.is er hægt að skoða niðurstöður mælinga og fylgjast þannig með framvindu jarðhræringa samfara gosinu.
Birt:
Tilvitnun:
Ríkisútvarpið „Eldgos hafið í Eyjafjallajökli“, Náttúran.is: 14. apríl 2010 URL: http://nature.is/d/2010/04/14/eldgos-hafid-i-eyjafjallajokli/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 16. apríl 2010