Fréttatilkynning frá Saving Iceland:

“REYKJAVÍKURBORG, HÆTTIÐ AÐ STYÐJA VOPNAIÐNAÐINN OG STÓRIÐJU.” BORÐI Á RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR MEÐ ÁLETRUNINNI “VOPNAVEITA REYKJAVIKUR?”

REYKJAVIK - Síðdegis í dag hefur fólk frá Saving Iceland klifrað utan á Ráðhús Reykjavíkur og hengt þar upp borða með áletruninni "Vopnaveita Reykjavíkur?" Fólkið hefur einnig dreift tímariti Saving Iceland og upplýsingum um mannréttindabrot stóriðjufyrytækja,
brask þeirra í vopnaiðnaðinum og ábyrgð á gróðurhúsalofttegundum.

"Þegar þetta er skrifað er Orkuveita Reykjavíkur, sem er í eiguReykjavíkurborgar, að vinna að stækkun Hellisheiðarvirkjunar. Fyrirhugað er að selja orku frá virkjuninni til Century-RUSAL og ALCAN-Rio Tinto til að knýja stækkanir á þeim álverum sem þegar eru til staðar í Hvalfirði og Hafnarfirði og fyrir nýjum álverum við Keflavík og Þorlákshöfn. 30% framleidds áls ný tist við vopnaframleiðslu," segir Jaap Krater frá Saving Iceland.

Fleiri virkjanir

Alcoa vill reisa nýja álbræðslu við Húsavík, Century-Rusal við Helguvík, Alcan-Rio Tinto og Norsk Hydro við Þorlákshöfn og Alcan- Rio Tinto enn í Hafnarfirði, jafnvel þó að stækkuninni hafi verið hafnað í kosningu.
Fari þessi plön eins og fyrirtækin vilja mun þurfa að virkja allar jökulár landsins til að næg orka sé til staðar. Það myndi eyðileggja hina einstöku náttúru Íslands. Landsvirkjun mun í vetur hefja vinnu við að reisa þrjár stíflur í Þjórsá til að skapa orku fyrir álhringana.

Stækkun álvers Alcan-Rio Tinto í Hafnarfirði var hafnað með íbúakosningu og aðrar fyrirhugaðar byggingar á álbræðslum á suðvesturhorninu eru óákveðnar. Sitjandi ríkisstjórn segist vera andstæð frekari álbræðslum en enn er unnið að
stækkun á Hellisheiði fyrir 23 milljarða króna. Íslensku þjóðinni verður þröngvað til að borga brúsann. Þegar stækkuninni er lokið verður Ísland neytt til að reisa fleiri álbræðslur því raforkuna verður að selja til að fá höfuðstólinn til baka. Í millitíðinni borga gróðurhúsbændur tvöfalt meira en t. d. Century fyrir rafmagn.

Fyrirtækin sem hagnast á þessu eru kunn að mannréttindabrotum og umhverfisglæpum.

CENTURY-RUSAL
Century er hluti af Glencore samsteypunni sem er þekkt fyrir skuggaleg viðskipti við S-Afríku á tíma "apartheid" stefnunnar, kommúnista Rússland, Íran klerkastjórnarinnar og Írak undir stjórn Saddam Hussein. Glencore er runnið saman við RUSAL og myndaði þannig stærsta álfyrirtæki í heimi. RUSAL er það fyrirtæki sem sér rússneska hernum hvað mest fyrir áli og kemur þannig beint að hinu gleymda stríði í Tsjetsjeníu þar sem a.m.k. 35.000 almennir borgarar hafa verið drepnir með sprengjum og flugskeytum úr áli. Glencore átti líka hlut í ný legu fjöldamorði Wayuu indíana og bænda í Kólumbíu til að stækka námur sínar.

ALCAN-RIO TINTO
Alcan er nú hluti af Ríó Tinto. Alcan hefur sjálft séð breska og evrópska vopnaiðnaðinum fyrir áli. Fyrirtækið hefur skelfilega sögu um umhverfisspjöll og er að reisa álbræðslu í S-Afríku sem knúin eru með kjarnorkuverum og kolaverum. Rió Tintó er eitt af viðbjóðslegustu fyrirtækjum í heimi, þekkt fyrir að leigja málaliða eins og Sandhill og “Executive Outcomes” sem hafa slátrað frumbyggjum sem barist hafa gegn námavinnslu, t.d. í Bougainville (nærri Papúa Nýju Gíneu).

ALCOA
Alcoa er stærsti söluaðili áls til Bandaríkjahers og framleiðir beint skriðdreka, flugvélar og flugskeyti sem notuð er í stríðinu í Írak. Alcóa eru að byggja nýjar álbræðslur m.a. í Brasilíu og Trinidad. Fyrirtækið vill reisa a.m.k. sjö nýjar virkjanir á Amazonsvæðinu og
þar með drekkja stórum hlutum af regnskóginum.

Frekari upplýsingar:
http://www.savingiceland.org
Sími: Jaap Krater, 8430619

Nánari upplýsingar um efni fréttatilkynningarnar:
http://www.savingiceland.org/node/857
http://www.savingiceland.org/hengill
http://www.savingiceland.org/node/841

Myndin er tekin af Ráðúsi Reykjavíkur á meðan að á Listahátíð stóð í sumar. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir

Birt:
22. júlí 2007
Höfundur:
Saving Iceland
Tilvitnun:
Saving Iceland „Vopnaveituborði á Ráðhús Reykjavíkur - Saving Iceland“, Náttúran.is: 22. júlí 2007 URL: http://nature.is/d/2007/07/22/saving-iceland-hengir-bor-rhs-reykjavkur/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: