Næstu tvo miðvikudaga verður síðasta matjurtanámskeiðið sem Sumarhúsið og garðurinn stendur fyrir á þessu vori en námskeiðin eru haldin í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðubergi 3-5,  111 Reykjavík.

Matjurtanámskeið:

Miðvikudagana 13. og 20. maí kl. 19:00 - 21:30. Tvö kvöld.

Á námskeiðinu er fjallað um sáningu, ræktun og umönnun í ræktun matjurta. Greint er frá hefðbundnum og óhefðbundnum ræktunaraðferðum, jarðvegi og áburðargjöf, sýndar mismunandi gerðir ræktunarbeða, karma og skjólgjafa.

Ræktun ávaxtatrjáa:

Mánudagana 11. og 18. maí kl. 19:00 - 21:30. Tvö kvöld. Ávaxtatrjárækt á Íslandi eykst frá ári til árs með tilkomu harðgerðra sérvalinna yrkja frá Kanada, Norðurlöndunum og Rússlandi. Einn aðalfrumkvöðull í ávaxtatrjárækt á Íslandi er Sæmundur Guðmundsson á Hellu en hann hefur á síðastliðnum 25 árum viðað sér þekkingu og prófað tugi yrkja af eplatrjám sem hann hefur ræktað upp í garði sínum á Hellu og sumarhúsalandi skammt frá Brúfelli í Landsveit. Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur hefur undanfarin ár viðað að sér harðgerðum yrkjum og þá oft í samvinnu við Sæmund og ágrætt á harðgerða rótarstofna. Jón hefur í garði sínum á Akranesi sem er steinsnar frá flæðarmálinu ræktar fjölda yrkja af eplum, kirsuberjum auk þess sem vaxa hjá honum utandyra plómu og perutré. Árlega uppsker hann epli, bragðgóð kirsuber, plómur og perur og miðlar hann af þekkingu sinni á námskeiðinu.

Skráning og upplýsingar um verð á rit.is, með tölvupósti á rit@rit.is  eða í síma 578 4800. Við skráningu komi fram: nafn, kennitala, heimili, sími og netfang nemanda. Einnig greiðslutilhögun. Kort eða staðgreitt með innlögn á reikning.

Mynd: Grænmetiskarfa, Sumarhúsið og garðurinn.

Birt:
11. maí 2009
Höfundur:
Auður I. Ottesen
Tilvitnun:
Auður I. Ottesen „Námskeið í matjurtarækt og ræktun ávaxtatrjáa“, Náttúran.is: 11. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/11/matjurtarnamskeio-i-matjurtaraekt/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: