Ljósmynd: Morgunfrú að springa út. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Einstakar jurtaolíur heitar og kaldar eru ýmist gerðar úr blómum eða blöðum líkt og te. Sé annað ekki tekið fram gildir sú regla að mestur kraftur sé í blöðum plöntunnar rétt fyrir blómgun en það sakar ekki að taka blómin með. Gullgerðarlistin kenndi að í eimaðri olíu blómanna birtist sál þeirra. Þó hér sé olían ekki eimuð úr blómunum sjálfum má gera ráð fyrir að eitthvað af sál plantnanna síist út í olíuna fyrir tilstilli sólarinnar.

  • Arfaolía er best gerð með heitu aðferðinni. Hún er sögð góð gegn húðertingu og exemi.
  • Blóðbergsolíumá nota sem nuddolíu.
  • Blöðruþangsolíu má bera á bólgna liði og gigtarsjúka. Tekin eru 500 g af þurrkuðu blöðruþangi og þau lögð í sólarhring í 1/2 lítra af sólblómaolíu. Síðan er olíunni haldið vel heitri í vatnsbaði í 2 klukkustundir og að því loknu er þangið síað frá.
  • Jóhannesarrunnaolíu má nota á bólgna liði og væg brunasár.
  • Morgunfrúarolía er gerð með köldu aðferðinni og sett út í baðvatn því hún róar taugarnar. Hún er einnig góð fyrir húðina og slitnar æðar.
  • Rósaolíu má hafa út í baðvatn og nota sem nuddolíu.
  • Rósmarínolía er gerð með heitu aðferðinni. Hún er góð fyrir hársvörðinn og auma limi.
  • Vallhumalsolía er góð nuddolía og hún er gerð með köldu aðferðinni.
  • Valurtarolía er gerð með heitu aðferðinni. Hana má nota á bólgna liði og tognaða, einnig er hún talin vinna gegn liðagigt.

Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur.

Birt:
12. júlí 2015
Tilvitnun:
Hildur Hákonardóttir „Einstakar jurtaolíur“, Náttúran.is: 12. júlí 2015 URL: http://nature.is/d/2007/11/07/einstakar-jurtaolur/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 7. nóvember 2007
breytt: 12. júlí 2015

Skilaboð: