Það er frumstæð tegund og auðveldara að rækta það heldur en aðrar káltegundir og það kemur fyrr upp. Grænkál er bragðgott og mikilvægt að temja sér að borða það hrátt. Ég stífi það úr hnefa í hvert sinn sem ég geng um garðinn til að fá mótvægi gegn miðdegiskaffibollanum. Þessi sterkgræna jurt er nauðsynleg í fæðubúskapnum og auðugri en annað grænmeti af vítamínum, málmsöltum og kalki.

Grænkál er afbragð í súpur, búðinga, jafninga og pottrétti og hægt að nota það til bragðbætis í salat. Samt bregður því sjaldan fyrir í uppskriftum. Það er sjálfsagt að setja grænkál í kjötsúpu og grænkálsgratín er herramannsmatur. Af káltegundum svipar því mest til hvannarinnar en er þó alls ekki beiskt.

Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum .
Myndin er af grænkáli í Skaftholti. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
5. júlí 2013
Tilvitnun:
Hildur Hákonardóttir „Grænkál“, Náttúran.is: 5. júlí 2013 URL: http://nature.is/d/2007/08/05/grnkl/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 5. ágúst 2007
breytt: 1. janúar 2013

Skilaboð: