Sparnaður orkar ekki tvímælis
Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir málþingi um orkumál heimila og fyrirtækja í grænum apríl.
Málþingið er haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins fimmtudaginn 14. apríl kl. 08:30-10:00.
Reykjavíkurborg tekur þátt í Evrópskum orkudögunum sem hafa það að markmiði að efla hagkvæma orkunýtingu og styðja nýtingu vistvænnar orku. Borgarbúar eiga góða möguleika á að spara orku á heimilum og í fyrirtækjum. Markmið málstofunnar
er því að miðla hugmyndun og aðferðum til orkusparnaðar og til að vekja almenna umræðu um orkunotkun á Íslandi.
Dagskrá:
08:30 Karl Sigurðsson formaður umhverfis- og samgönguráðs opnar málþingið
08:40 Skynsöm orkunýting - Þorvaldur Finnbogason Orkuveitu Reykjavíkur gefur nytsamlegar upplýsingar um sparnað á rafmagni og húshitun.
09:00 Kaffihlé
09.:20 Orkubókhald heimila - Sigurður Ingi Friðleifsson Orkusetri talar um orkusparnað og samgöngur.
09:40 Umræður
10:00 Málstofulok
Fundarstjóri: Ellý Katrín Guðmundsdóttir sviðsstýra Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar
Allir velkomnir!
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur „Sparnaður orkar ekki tvímælis “, Náttúran.is: 12. apríl 2011 URL: http://nature.is/d/2011/04/12/sparnadur-orkar-ekki-tvimaelis/ [Skoðað:21. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.