Reykjavíkurborg hefur opnað nýjan vef til að kortleggja hjólaleiðar til og frá vinnu, þar sem jafnframt er hægt að koma með ábendingar um úrbætur og mæla vegalengdir. Fólk getur bent á vástaði, t.d. hvar vanti göngu- og hjólreiðastíga, hvar bifreiðar fari of hratt og skrifað aðrar athugasemdir. Einnig er hægt að sækja hjólaferil í GPX skrá fyrir GPS tæki.

Eva Einarsdóttir formaður Íþrótta- og tómstundráðs Reykjavíkurborgar sagði frá nýja vefnum á opnunarhátíð Hjólað í vinnuna í morgun. Hún sagði að markmiðið væri að sjá hvar fólk vill hjóla, hvar það telur sig öruggt og hvar óöruggt. Þeir sem nota vefinn taka um leið þátt í því að bæta aðgengi og upplifun hjólreiðafólks. Upplýsingarnar nýtast við að skipuleggja Hjólaborgina Reykjavík en vefurinn er byggður á borgarvefsjá

Reykjavíkurborg heldur einnig áfram í sumar að bæta aðstæður fyrir hjólandi og gangandi í borginni til dæmis með því að opna götur alfarið fyrir gangandi og hjólandi í Hafnarstræti, Pósthússtræti og Austurstræti, sagði Eva Einarsdóttir og að tíu kílómetrar af hjólastígum í borginni hafi verið skipulagðir og fyrsti áfangi hjólreiðaáætlunar því litið dagsins ljós. Hraðleið frá Laugardal að Ægisíðu ásamt hjóla- og göngbrú yfir Elliðaárósa hefur til að mynda verið hönnuð.

Sjá nýja vefinn um hjólaleiðir

Sjá vef Hjólað í vinnuna.

Sjá Borgarvefsjá

Birt:
4. maí 2011
Tilvitnun:
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur „Nýr vefur til að bæta hjólaleiðir í Reykjavík“, Náttúran.is: 4. maí 2011 URL: http://nature.is/d/2011/05/04/nyr-vefur-til-ad-baeta-hjolaleidir-i-reykjavik/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: