Umhverfisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til Kuðungsins 2007
Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2007. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum.
Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en föstudaginn 4. apríl næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn 2007", á póstfangið postur@umhverfisraduneyti.is eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.
Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Sjá hér á Grænum síðum þau fyrirtæki sem hlotið hafa Kuðunginn til þessa.
Birt:
3. mars 2008
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Umhverfisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til Kuðungsins 2007“, Náttúran.is: 3. mars 2008 URL: http://nature.is/d/2008/03/02/umhverfisraouneytio-oskar-eftir-tilnefningum-til-k/ [Skoðað:27. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 2. mars 2008
breytt: 3. mars 2008