Í Morgunblaðinu í dag birtist grein eftir Illuga Gunnarsson undir yfirsögninni „Stjórnmálaskoðanir og umhverfismál“. Þar bendir Illugi m.a. á að ómögulegt sé að skilja hvernig að Hellisheiðavirkjun OR hafi komst í gegnum umhverfismat. Sofandiháttur virðist honum hafa haft mikil áhrif á að ekki voru gerðar meiri athugasemdir við virkjunina en raun bar vitni. Nú stendur eftir minnismerki um sofandaháttinn og Hellisheiðin gersamlega undirlögð af rörum, línum, borholum og öðrum mannvirkjum. Illugi bendir einnig réttilega á að andstaðan við Kárahnjúkavirkjun hafi þannig verið á kostnað gríðarlega neikvæðra umhverfisáhrifa í bakgarði stór-Reykjavíkursvæðisins. (sjá grein Illuga)

Náttúruverndarsamtök Suðurlands (NSS) voru aftur á móti mjög upptekin af verndun Þjórsárvera undanfarin ár og svo virðist sem að þau hafi litið virkjunina á heiðinni sem nokkurskonar fórnarkostnað fyrir verndun Þjórsárvera. Enda mikið á lítið félag lagt að standa vörð um eins stórt svæði og Suðurlandið er, fyrir virkjanavaldinu eins og það hefur birst síðastliðin ár. Því er að nokkru leiti skiljanlegt að stjórn auralausra samtaka hafi verið örmagna eftir þann róður sem fólst í að vekja athygli á fyrirhugaðum umhverfisspjöllum virkjana í Þjórsárverum. Þar sem einungis var um áfangasigur að ræða er fyrirsjáanlegt að félagið þurfi að berjast áfram fyrir verndun Þjórsárvera og gegn virkjanáformum niður eftir Þjórsár allri.
-
Myndin er tekin á Hellisheiðinni þ. 26. 09. 2006. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
21. október 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Stjórnmálaskoðanir, umhverfismál og úthald náttúruverndarsamtaka“, Náttúran.is: 21. október 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/19/umhverfismal_uthald/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 19. mars 2007
breytt: 2. maí 2007

Skilaboð: